Þú ert Gyðja þinnar eigin upprisu
Sálin þín er að tala við þig. Ertu að hlusta ?
Mundu hver þú ert.
The Alchemy
Engar tvær konur eru eins og því eru engir tveir tímar eins. Þú býrð nú þegar yfir öllu sem þú leitar að. Mitt hlutverk er að hjálpa þér að finna mýktina og hugrekkið sem býr innra með þér. Að muna að þú ert nú þegar heil, elsku kona. Þú þarft ekki að verða einhver önnur. Þú þarft bara að vera þú.
Valkyrie Ascension
Valkyrie Ascension varð til út frá einni einfaldri hugsun.
Við konur erum náttúruafl. Við erum frelsi, við erum sköpun, við erum hugrekki, styrkur, ást, mýkt og svo ótalmargt fleira. Við erum náttúruafl.
Svo margar okkar finna að það sé eitthvað meira. Að lífið sé stærra en það sem okkur hefur verið kennt. Gildin sem okkur hafa verið innrætt, hlutverkin sem okkur voru úthlutað. Sú tilfinning er ekki gripin úr lausu lofti. Hún er sálin að kalla á raunveruleikann sem okkur er ætlað að lifa.
Við erum alltaf að skapa lífið okkar, meðvitað eða ómeðvitað. Með hugsunum okkar, orðunum sem við veljum, ákvörðununum sem við tökum og orkunni sem við veljum að taka inn og gefa frá okkur.
Valkyrie Ascension er byggð á þeirri hugmyndafræði að þegar kona man hver hún er, verður hún fær um að skapa raunveruleikann sinn með meðvitund, af frelsi. Hún bíður ekki, hún treystir. Hún velur með hjartanu, fylgir innsæinu og skapar líf sem er í takt við hvernig hjartað hennar slær.
Þegar kona tengist Gyðjunni og Valkyrjunni innra með sér fara þessar tvær orkur að vinna saman. Mýkt og styrkur. Flæði og hugrekki. Það er þar sem frelsið verður til. Frelsið til að vera að fullu hún sjálf.
Hjartað á bak við Valkyrie Ascension
Ég heiti Sigurrós Yrja og er svo heppin að hafa verið úthlutað mörgum hlutverkum í lífinu.
Þetta ferðalag lífsins er litríkt, fallegt og þroskandi. Og stundum óbærilega grátt. En það er einmitt þetta gráa sem þroskar okkur mest.
Mitt eigið ferðalag er litað af öllu litrófinu. Ég þekki vel að festast í áföllum og kvíða og sjá ekki leiðina út. Ég veit hvernig það er að minnka sig svo mikið að maður týnir sínu eigin ljósi. Ég veit líka hvernig það er að finna þennan kraft innra með sér sem segir: „Ég ætla ekki að vera hérna.“ Að taka þessa einu hugrökku ákvörðun og finna ljósið sitt á ný.
Ég veit hversu mikils hugrekkis það krefst að kafa djúpt og vita ekki hvað maður finnur. Ég veit hvernig það er að uppgötva glænýja útgáfu af sjálfri sér, hrista af sér álit annarra og læra að standa stöðug í þeirri konu.
Síðastliðin ár hef ég verið á djúpstæðu andlegu ferðalagi. Ég hef upplifað svartara myrkur en nokkru sinni fyrr og sorg svo sára að það var eins og það væri verið að rífa úr mér hjartað. Á þessum sömu árum hef ég líka upplifað meiri frið, meiri gleði, meiri hamingju, meira þakklæti og meiri ást en ég vissi að væri til.
Það er ástæðan fyrir því að ég veit að við getum skapað okkur lífið sem hjartað okkar kallar á.
Ég hef mikla ástríðu fyrir orku og því hvernig við getum notað hana til að skapa okkur það líf sem okkur dreymir um. Síðastliðin ár hef ég drukkið í mig vitneskju úr andlegum fræðum, um orkulíkamann okkar og ekki síst um kven- og karlorku. Samhliða því hef ég lagt stund á nám af ýmsum toga sem tengist orkuvinnu og heilrænni heilsu.
Og það er akkúrat þetta ferðalag sem kom mér á þann stað sem ég er á í dag.
Hingað að tala við þig, fallega kona.
Ástríðan mín liggur í að hjálpa öðrum konum að tengjast sinni innri Gyðju og sinni innri Valkyrju.
Við konur erum náttúruafl !
Það sem ég geri verður aldrei sett í einn kassa. Ég blanda somatic trauma-vinnu, orkuvinnu, eigin reynslu og innsæi. En ég er fæddist með þá gjöf að sjá inn í hjarta fólks, framhjá öllu ruslinu.
Í sameiningu sköpum við öruggt rými þar sem þú færð að anda, finna, muna...
...og galdra.
Ert þú tilbúin til að kafa djúpt, standa stöðug í þínum eigin krafti, dýrðlegu mýkt og vera óafsakanlega þú sjálf?
Ljós og hlýja
Sigurrós Valkyrja
Mundu hver þú ert.
Sálin þín veit leiðina.
info@valkyrieascension.com